HEIM | rr-mix
top of page

þessi gæi

Rúnar Örn heitir hann og er búinn að vera viðloðandi "plötuspilarana" ansi hreint lengi og sér ekki fyrir endann á því þrátt fyrir langan aldur í bransanum.  Þetta virðist bara hreint ekki ætla að eldast af sumum !

RR-mix eru blöndur sem hann byrjaði að dunda sér við að hræra saman einhverntíma þarna í fortíðinni og er enn að.

Fyrir þá sem vilja hlusta á eitthvað af þessari vitleysu þá er hægt að velja "MIXIN" flipann hérna uppi.  Það er einnig hægt að niðurhala, eða "downloada" þessum blöndum,

Árið 2022 voru 35 ár frá því talið var í fyrsta diskótekið og ballið er ekki búið enn, því það er víst enn hægt að bóka þann gamla ef vel liggur á honum.

Þú getur t.d. haft samband með messenger, en það er takki til þess hér neðst á síðunni, nú  eða sent email á runar@taktfast.is

---

TAKTFAST er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að sjá um og halda veislur og viðburði af hvaða tagi sem er. Ertu að halda afmæli, brúðkaup, árshátíð, eða einhverja aðra skemmtun og veist ekki alveg hvað þarf að gera? Við setjumst niður með þér, förum yfir málið og sjáum svo bara um þetta. Við höfum sambönd við fullt af aðilum sem gott er að þekkja þegar gera á eitthvað svona skemmtilegt. Skemmikrafta, hjómsveitir, plötusnúða, veislusali, tækjaleigur, o.s.frv...

Heimasíða TAKTFAST

DJRR_edited.png
bottom of page